Árið 1976 kom fréttamaðurinn Dan Rather til Íslands á vegum fréttastofu CBS til að gera þátt um Ísland fyrir fréttaskýringarþáttinn 60 mínútur. Dan Rather finnst margt forvitnilegt í sambandi við það hvernig íslenskt samfélag virkar. Við tókum til dæmis ekki við þjórfé, vorum öll í símaskránni og bárum öll eftirnöfn feðra okkar.
Hann fjallar sérstaklega um hversu vinnuglöð þjóð við erum, sérstaklega í erfiðisvinnu og hversu opin við erum þegar kemur að frelsi í kynlífi fyrir hjónaband. Það er augljóst að lítið hafi breyst á þessum 43 árum frá upptöku þáttarins.
Rætt var við þáverandi ræðismann Íslands í Bandaríkjunum, Ívar Guðmundsson, um þá áætlun Íslendinga að selja rafmagnið okkar til Bandaríkjanna, Suður-Ameríku og alveg niður til Vestur-Afríku:
„Ég skil það þannig að það væri hægt að notast við gervihnött til að senda rafmagn til svæðis frá Boston á austurströnd Bandaríkjanna, til Flórída, allt Karíbahafið, alla Suður-Ameríku og alla leið til Vestur-Afríku. Ásamt hluta af Portúgal og Spán.“
Dan Rather bregst við þessari yfirlýsingu Ívars með furðu og finnst þetta ótrúlegt, en Ívar svarar honum af öryggi:
„Það virðist ótrúlegt, en það er ekki ótrúlegt í dag.“
Samkvæmt þættinum var ástæða þess að við Íslendingar vildum selja rafmagnið í gegnum gervihnött til útlanda sú að við vildum ekki flóð af útlendingum til landsins þar sem kynstofn okkar væri hreinn, – og þannig vildum við hafa það.
Hér að neðan má sjá fréttaskýringarþáttinn í heild sinni um Ísland.