Íslendingar verða æ heimskari sem þjóð

Því menntaðri sem Íslendingar verða, því færri börn eignast hinir menntuðu. Þetta leiðir til þess að Íslendingar verða smám saman vitlausari og vitlausari.

Fréttatíminn hefur þetta eftir Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Niðurstöður úr margra ára rannsókn fyrirtækisins á þessari hnignun þjóðarinnar eru væntanlegar í erlendu vísindatímariti á næstunni.

Kári segir í samtali við Fréttatímann að þetta sé \"ógnvekjandi þróun og ekki ýkja hægfara í augum vísindamanna\"

Þeir Íslendingar sem séu uppi nú ættu að njóta þess að vera talsvert greindari en næsta kynslóð, jafnvel þótt þeir séu ekkert sérstaklega klárir í kollinum!