Íslendingar veiða 1,47% heimsaflans

Íslendingar veiddu næst mest allra Evrópuþjóða árið 2013 samkbæmt nýrri samantekt Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), en þó ekki nema 1,47% alls heimsaflans. 

Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar í dag, en árið 2013 var heimsaflinn 93,8 milljónir tonn, sem er 1,4 milljónum tonnum meira en árið áður.

Mestur afli veiddist í Kyrrahafi. Mest veidda tegundin er perúansjósa, eins og á síðustu árum, en næst mest veidda tegundin er alaskaufsi.

Mestur hluti af heimsaflanum var veiddur í Asíu, næst í Ameríku og svo Evrópu. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2013, en Norðmenn veiddu mest allra Evrópuþjóða og eru í 12. sæti yfir mestu veiðiþjóðir.

Íslendingar veiddu næst mest allra Evrópuþjóða og eru í 18. sæti heimslistans með 1,47% af heimsaflans.