Íslendingar hafa tekið ferðagleði sína á ný því 6,600 fleiri landsmenn héldu út fyrir landsteinana í nýliðnum júnímánuði samanborið við sama mánuð á síðasta ári.
Og kannski er það eins gott á meðan erlendu ferðafólki hér á landi stórfjölgar að þeir sem fyrir eru gefi gestunum eitthvert pláss. Þannig var það ekki árið 2009, en sumarið eftir hrun sátu Íslendingar meira og minna heima; einungis 25 þúsund þeirra treystu sér út fyrir lögsöguna á miðju sumri, næstum helmingi færri en núna þegar rösklega sex ár eru liðin frá hruni.
Samkvæmt tölum Ferðamálastofu um utanferðir Íslendinga hafa það sem af er ári 208,535 Íslendingar farið utan, eða 23,700 fleiri en á sama tímabili í fyrra, en júní og júlí eru vinsælustu ferðamánuðir Íslendinga.