Íslendingar sólgnir í hvalaskoðun

Íslendingar sýna Hvalasýningunni úti á Granda jafn mikinn áhuga og erlendir ferðamenn að sögn Sædísar Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra hvalasýningarinnar Hvalir Íslands. 


Sjónvarpskonan Sirrý heimsótti safnið í þætti sínum Lífsins list á Hringbraut í kvöld og skoðaði 23 hvalalíkön í fullri stærð sem eru til sýnis í rúmgóðu húsnæði safnsins. Að sögn aðstandendanna er sýningin Hvalir Íslands stærsta hvalasýning í Evrópu - og jafnvel í öllum heiminum - þar sem gestir sýningarinnar geta lært um risa hafsins í þægilegu og nútímalegu umhverfi. 


Sædís Guðmundsdóttir segir að það komi skemmtilega á óvart að Íslendingar eru jafn áhugasamir um sýninguna og erlendir ferðamenn. Sýningarhaldarar verði ekki varir við annað en að bæði hvalfriðunarsinnar og þeir sem styðja hvalveiðar njóti sýningarinnar í sama mæli. 


Þátturinn var frumsýndur klukkan 21.30 í kvöld og verður endursýndur 23.30.