„Maður hittir ekki mann úti núna sem ekki hefur fylgst með þessum málum. Það veit öll þýska þjóðin að forsætisráðherra Íslands þurfti að segja af sér út af þessum aflandsmálum og þessi grein á forsíðu netútgáfu blaðsins er punkturinn yfir i-ið. Menn héldu að þessu væri að ljúka. Það sem Íslendingar ættu að fara hugsa um er að þessir atburðir síðustu missera, og núna með forsetann á forsíðu stórblaðs, hafa skapað mynd af þjóðinni sem er farið að minna á einhvern frumstæðan þjóðflokk. Við erum að verða einhver undarlega kjánalegur söfnuður á hjara veraldar sem komst óvænt í feitmeti og getur ekki hætt að troða út á sér belginn. Það er mikill misskilningur þegar fólk heldur því fram að þetta hafi ekki áhrif á ímynd Íslendinga í útlöndum. Við erum búin að verða okkur til háborinnar skammar um víða veröld og ekki síst í okkar nágrannalöndum, eins og Þýskalandi,“ sagði Arthur Björgvin á Morgunvaktinni.\"
Íslendingar frumstæðir og gráðugir
Íslendingur, búsettur í Þýskalandi, segir að oft hafi verið ánægjulegra en upp á síðkastið að búa í útlöndum. Hneykslismál bæði forseta Íslands og forsætisráðherrans sem fór frá völdum vegna Panamaskjalanna sé m.a. um að kenna. Engin spurning sé að stórfelldur skaði hafi orðið á orðspori Íslands.
„Það hefur oft verið ánægjulegra að vera Íslendingur í útlöndum“, sagði Arthúr Björgvin Bollason á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun í samtali við Óðin Jónsson.
Fram kom að á Arthúri dynja spurningar Þjóðverja hvernig það megi vera í þessu örlitla samfélagi að íslenskir ráðamenn séu svo illa haldnir af græðgi að þeir skeyti hvorki um skömm né heiður þegar peningar séu annars vegar.
Hneykslismál forsetahjónanna íslensku sem tengist aflandsmálum er forsíðufrétt á stærsta dagblaði Þýskaland eftir því sem fram kom í spjallinu á Morgunvaktinni.
Frumstæður, gráðugur söfnuður
Fleiri fréttir
Nýjast