Umboðsmaður barna, Salvör Nordal, hefur hvatt Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, til að taka til skoðunar fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum. Í erindi til ráðherra segir Salvör að það séu helst eldri börnin sem kvarti undan sundkennsluskyldunni. Málið er umdeilt, vilja margir að sundkennsla verði áfram kennd út tíunda bekk, á meðan aðrir segja það kennsluna tímaskekkju.
Þessi umræða hefur vakið upp minningar hjá mörgum, sumar góðar, aðrar beinlínis hræðilegar. Netverji tók upp á því að safna upplifunum fólks úr skólasundi.
Áhugavert! Hvernig voru ykkar skólasunds-upplifanir? Er kominn tími á að kenna þetta öðruvísi?https://t.co/LqOWt2m0Of
— una stef (@unastef) June 23, 2021
Fannst ágætt þar til ég flutti frá Rvk. Ég var ekki einu sinni búin að losna við kork þar en á Akureyri var byrjað að kenna flugsund.
— Tinna Eik (@tinna_eik) June 23, 2021
Var neydd í aukatíma og fór í þá í staðin fyrir íslensku sem var uppáhaldsfagið og það sem ég var best í.
Hafði engin súper áhrif á sjálfsmatið.
Hataði það af öllu mínu hjarta. Fyrir utan það að vera blind án gleraugna og sjá lítið, þá var þetta kalt, eineltisgryfja og hreinlega ómannúðlegar kröfur bæði líkamlega og svo tímalega - það er ekki sens fyrir 15 stelpur að fara í sturtu og klæða sig á 15 mínútum með 7 sturtur
— Ásta Helgadóttir (@asta_fish) June 23, 2021
Og þurfa að labba yfir í skólann (3-5 mín) og inn í næsta tíma. Með blautt hár og ógreitt. Pirraða kennara yfir því að helmingurinn af bekknum kom ekki á réttum tíma. Óþarfa stress og kröfur og bara, ömurlegt í alla staði.
— Ásta Helgadóttir (@asta_fish) June 23, 2021
byrjaði að vera “feik” alla fimmtudaga í 7 bekk, svo í 8 bekk fór ég bara að koma með afsakanir til kennarans þangað til það kom afleysingarkennari í lok 9 bekkjar og sá að það var ekki allt með felldu, hann hringdi í mömmu mína og ráðlagði henni að fara með mig til læknis (1/?)
— Hrafnhildur Eggerz (@hrafnhildureh) June 24, 2021
Hlaupa í skítakulda í níðþröngri Speedo út í laug. Vona að karljúllurnar veki sem minnsta athygli. Gleypa mikið vatn. Uppúr og heim.
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) June 23, 2021
Var góður í sundi elskaði sund. En var með sömu tilfinningu gagnvart Stæ í 8-10.bekk. Svaf ekki nætur fyrir stæ vegna kvíða og stríðni. Ætlum við að heimfæra þetta á önnur fög? Held að dæmið snúist líka um hreyfingu.
— lig.birnir (@meiddur) June 23, 2021
Hataði af ástríðu skólasund enda í 6. og 7. bekk komin með líkama konu,ég og ein önnur af stelpunum og byrjaðar á túr báðar snemma. Leið ömurlega í sundbol, hrikalega illa í sturtu með stelpunum og sundkennarinn stundum lagði sig fram við að einblína á það sem ég gerði EKKI 100%.
— Iris Lindal (@IrisLindal) June 24, 2021
Alveg hræðilegt. Hætti að mæta þegar ég var komin upp í unglingadeild (um leið og ég komst upp með það án þess að það yrði hringt heim), skrópaði í allt nema prófin. Það gleður mig að heyra að það sé verið að íhuga að koma til móts við börnin.
— ⚔️e'bеt 🇵🇸 (@jtebasile) June 23, 2021
Þorði aldrei að stinga mér (7/8 ára), annar fóturinn var alltaf boginn (sá vinstri enda örfætt sem kennaranum fannst rosa fyndið) nema hvað, ég var síðan látin stinga mér fyrir framan krakkana sem dæmi um hvernig ætti ekki að stinga sér. Ein saga af milljón.
— Lára Björg Björnsdóttir (@LaraBjorg) June 24, 2021
Líkt og aðrir nærsýnir hafa nefnt í þessum þræði, þá er þetta alveg glatað þegar maður sér ekki neitt. Svo var búningsklefinn notaður í að leggja krakka í einelti (og lemja á). Það var alveg hel-glatað, óháð því hvort að maður væri sá sem lenti í því þá vikuna, eða horfði upp á.
— Hlynur Hallgrímsson (@hlynur) June 23, 2021
Ég var verst í sundi í öllum bekknum og varð ekki góð fyrr en í 6. bekk þegar ég prófaði að æfa sund utan skóla.
— Alda 🇵🇸 (@aldavigdis) June 24, 2021
Ég held að það sama gildi um aðra íþróttakennslu, tónmennt og handmennt — að þú færð ekki einu sinni séns til að standa þig í þessu nema þú sért með forskot.
Þoldi ekki skólasund, kveið alltaf fyrir því. Hætti að mæta í 8. bekk minnir mig, þegar ég komst upp með að vera bara alltaf á túr. Þoldi ekki að upplifa mig sem einu stóru, feitu stelpuna sem byrjaði fyrst á kynþroskaskeiði, alltaf hægust í sundinu, kennarinn öskrandi.
— Helena G. Guðmundsd. (@HelenaGudrun) June 23, 2021
Sem mjög grannur krakki með bilað hitasystem í líkamanum, þá var skólasund ömurlegt. Ég var alltaf að frjósa úr kulda og átti það til að fá kuldakrampa í lappirnar. Gekk illa að synda vegna þess og upplifunin var bara pynting.
— Ásdís (@asdiso) June 23, 2021
Sundtímana upplifði ég bara jákvætt ólíkt íþróttatímum í grunnskóla sem voru martröð.
— Perla Kolka (@perla_kolka) June 23, 2021
Ömulegt ég reyndi allt til ad sleppa skrópa fà einhvern til ad skrifa ad ég gæti ekki farid í sund og ég hef ekki farid í sund sídan ég var í tíunda bekk 98 ef ég man rétt
— Daviðulfarsson (@DUlfarsson) June 23, 2021
Strákarnir ALLTAF að kíkja á stelpurnar
— Tinna Sigurðardóttir (@Tinntinnabuli) June 23, 2021
Skólasundið var eina skiptið þar sem kennari kallaði mig "aumingja".
— Hilmar Thor Bjarnason (@HTBjarnason) June 23, 2021