Íslendingar næstum 350 þúsund talsins

Íslendingar eru við það að verða 350 þúsund talsins.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar  voru landsmenn samtals 348.450 1. janúar síðastliðinn og hafði fjölgað um 10.101 frá því á sama tíma árið 2017, eða um 3%. Konum fjölgaði um 2,1 prósent, voru 170.850, en körlum fjölgaði um 3,8 prósent, voru 177.600. Þetta kemur fram í mannfjöldatölum sem birtar voru á vef Hagstofunnar í dag.

Hlutfallslega varð mest fólksfjölgun á Suðurnesjum, 7,4% en talsverð fólksfjölgun var líka á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúum fjölgaði um 5.606 í fyrra eða 2,6%.

Einnig fjölgaði íbúum á Suðurlandi (4,6%), Norðurlandi eystra (2,6%), Austurlandi (2,4%) og Vesturlandi (2%), en minna á Vestfjörðum (1,8%) og Norðurlandi vestra (0,5%),“ segir á vef Hagstofunnar.

Í þéttbýli bjuggu 330.559 og fjölgaði um 13.655 á milli ára en í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 22.048.

 

Miðað við mannfjöldaspá Hagstofunnar í fyrrahaust má gera ráð fyrir að landsmenn verði orðnir 400 þúsund í kringum 2025.