Sindri Geir Óskarsson íslenskur prestur, segir að lítill krúttlegur bær, Brønnøysund, sem hann og fjölskylda hafi flutt til í síðustu viku taki á morgun við 90 erlendum flóttamönnum. Eigi að síður búi aðeins 8000 manns í bænum. Það hefur vakið athygli vina Sindra Geirs, því nú styttist í að sýrlensku flóttamennirnir komi til Íslands. Heildarfjöldi þeirra nær því ekki að vera eins mikill og fjöldi gestanna í norska smábæinn. Þá eru margir aðrir litlir bæir í Noregi rétt í þann mund að taka á móti flóttamannahópum.
„Mér þykir áhugavert að velta fyrir mér muninum á mér og þeim, ég kom aðeins viku fyrr, er ekki flóttamaður en jafn mikill útlendingur í þessu landi, ég vona að við munum öll ná að dafna hér og líða vel. Eins er merkilegt að setja þennan fjölda í samhengi við þann sem íslenska þjóðin ætla að taka á móti. Mjög merkilegt,“ segir Sindri í samtali við Hringbraut.
Sindri segir að bærinn Brønnøysund, sé á sömu breiddargráðu og Ísland.
\"Ég veit bara að við getum gert miklu betur hvað fjölda flóttamanna varðar, það má þakka fyrir þennan hóp sem við erum búin að taka á móti en þegar við skoðum það í samhengi við að þessi litli bær og fleiri álíka stórir hér í kring eru búnir að taka á móti margföldum þeim fjölda sem Ísland hefur tekið á móti þá er ekki tilefni til að klappa sér á bakið og hrósa sér fyrir að hafa gert mjög vel eða betur en aðrir,“ segir Sindri.
Hann bendir einnig á að Noregur sé í efnahagslægð. Norska krónan fjórðungi lægri en þegar hann var í Noregi á sama tíma í fyrra. „En þeir leggja samt gífurlega fjármuni í móttöku flóttafólks.“