Íslendingar miklir eftirbátar

Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, fagnar fádæma árangir landsiðsins í Frakklandi. Hann segir að með árangrinum skapist mörg tækifæri fyrir íþróttafólk til frekari afreka.

Lárus segir að nú sjái allir hversu mikils virði það er þegar íþróttamenn okkar standa eins vel og dæmin sanna.

Hann bendir á að um eitt hundrað milljónum er varið í afrekssjóð ÍSÍ en til danska handboltasambandsins eru settar um 320 milljónir íslenskra króna á ári. Hann segir að hið minnsta þurfi að sexfalda framlagið hér svo vel verði við unað.

Lárus Blöndal er gestur Þjóðbrautar í kvöld klukkan 21:00.