DV greindi frá málinu í morgun. Í spænska vefmiðlinum Murcía Todayer fíkniefnaverksmiðjunni lýst sem þeirri fullkomnustu í Evrópu. Talið er að tugir tonna af kannabis hafi verið framleidd í verksmiðjunni og flutt til Hollands í hverjum mánuði. Kannabisverksmiðjan var í yfirgefnu verksmiðjuhúsnæði í Molina, norðan við Murcía, sem er skammt frá Alicante á Spáni.
Fréttastofa RÚV hafði samband við lögregluna í Murcía sem veitti ekki upplýsingar vegna málsins. Um sex þúsund marijúana plöntur voru ræktaðar í verksmiðjunni. Hún var búin fullkomnasta tækjabúnaði, sem metinn er á um milljón Evrur, eða um 150 milljónir króna.
Grunur lögreglu vaknaði vegna gífurlegrar aukningar í rafmagnsnotkun á svæðinu, sem rekin var til verksmiðjunnar. Íslenskur maður er talinn einn af höfuðpaurum málsins. Tveir aðrir Íslendingar, sem taldir eru vitorðsmenn hans, voru handteknir þar sem þeir reyndu að komast akandi frá Spáni, og fjórði Íslendingurinn var stöðvaður á flugvellinum á leið frá Alicante til Íslands. Sjö Hollendingar voru einnig handteknir vegna málsins.