Íslenska sendiráðið í Osló í Noregi hefur biðlað til Íslendinga sem þar eru staddir að láta aðstandendur vita af sér ef allt er í lagi vegna skotárásarinnar sem átti sér stað í miðborg Oslóar í nótt.
Sendiráðið birtir stöðuuppfærslu á Facebook þar sem þessum skilaboðum er komið á framfæri.
Þá eru Íslendingar í Noregi beðnir um að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustu ef þörf er á aðstoð vegna skotárásarinnar.
Sendiráðið segist fylgjast vel með framvindu mála og er fólk beðið um að virða lokanir og tilmæli yfirvalda ásamt því að fylgjast vel með staðbundnum fjölmiðlum.
Mikið álag sé á símkerfi borgarinnar og er fólk hvatt til að nota samfélagsmiðla til að láta vita af sér.
Tveir létust og hátt í tuttugu manns særðust í árásinni sem átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn London Pub sem er vinsæll samkomustaður hinsegin fólks.
Árásarmaðurinn var handtekinn skammt frá vettvangi í nótt en hann er 42 ára norskur ríkisborgari sem kom til Noregs sem flóttamaður frá Íran á barnsaldri.