Íslendingar í mestri lyfjaneyslu

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan hafa Íslendingar nú tryggt sér enn eitt metið. Þó hafa þau þó fallið gleðilegri.

Í Health at a glance 2015 þar sem segir frá ýmsum samanburði OECD-landanna koma fram upplýsingar sem í stuttu máli ganga út á að Íslendingar neyta meira magns af þunglyndislyfjum en nokkur önnur OECD-þjóð. Innan sambandslandanna í heild hefur notkun þunglyndislyfja tvöfaldast frá árinu 2000.

Þráinn Bertelsson rithöfundur tekur kaldhæðinn vinkil á málið en hann er í hópi þeirra sem deilt hafa OECD-upplýsingunum á facebook:

„Mér sýnist þarna koma fram að 118% Íslendinga séu nú á þunglyndislyfjum; þetta þýðir að talsvert margir taka tvöfaldan skammt.

En vissulega skörum við fram úr öðrum þjóðum á þessu sviði eins og öðrum.“