Íslendingar húðflúraðir í auknum mæli

Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að Íslendingar skreyti líkama sína með húðflúrum. Í dag eru 20 prósent fullorðinna Íslendinga með húðflúr. 24 prósent kvenna eru með húðflúr og 17 prósent karla. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup

Mikill munur er eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk kysi til Alþingis en langflestir eru með húðflúr meðal þeirra sem kysu Pírata, eða 42 prósent, og fæstir meðal þeirra sem kysu Framsóknarflokkinn, eða tæplega 4 prósent.

Þeir sem eru með húðflúr eru að meðaltali með þrjú talsins. Hátt í 39 prósent þeirra eru með eitt, nær 22 prósent með tvö, tæplega 13 prósent með þrjú og rúmlega 27 prósent eru með fjögur eða fleiri.

Ríflega 20 prósent þeirra sem eru ekki með húðflúr í dag gætu hugsað sér að fá sér slíkt þegar fram líða stundir. Fólk er líklegra til að geta hugsað sér það eftir því sem það er yngra.

Húðflúr eru auk þess algengust hjá fólki milli þrítugs og fertugs, svo hjá fólki undir þrítugu, þá hjá fólki milli fertugs og fimmtugs en sjaldgæfust hjá fólki yfir fimmtugu. Þeir sem hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi eru frekar með húðflúr en þeir sem hafa meiri menntun að baki.

Mjög hátt hlutfall þeirra sem eru með húðflúr gæti hugsað sér að fá sér fleiri, eða ríflega 87 prósent þeirra sem taka afstöðu. Fólk yngra en þrítugt er líklegast til að geta hugsað sér það, þá fólk milli þrítugs og fertugs, svo fólk milli fertugs og fimmtugs, en fólk eldra en fimmtugt er ólíklegast til þess.