Í nýrri könnun MMR kemur fram að 44% Íslendinga hafa áhyggjur af spillingu í fjármálum og/eða stjórnmálum. Fast á eftir fylgja áhyggjur af fátækt og/eða félagslegum ójöfnuði og heilbrigðisþjónustunni á Íslandi með rúmlega 35%. Um 30% Íslendinga hafa svo áhyggjur af húsnæðismálum. Mest hafa áhyggjur Íslendinga aukist vegna loftslagsbreytinga, en um 11% Íslendinga hafa áhyggjur af þeim.
Áhyggjur Íslendinga minnka þó gagnvart menntun á Íslandi. Íslendingar sem eru 68 ára og eldri hafa mestar áhyggjur af spillingu eða um 62%. Aldurshópurinn 18-29 ára hafa hins vegar mestar áhyggjur af húsnæðismálum. Stuðningsfólks Pírata, Miðflokksins og Flokk fólksins hafa mestar áhyggjur af spillingu. Þá reyndist stuðningsfólk Vinstri-grænna líklegra en stuðningsfólk annarra stjórnmálaflokka til að segjast hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum eða um 33%.