Íslendingar munu ekki geta sent bréf né pakka með Póstinum til Kína. Ástæðan fyrir því er sú að þau flugfélög sem þjónusta Póstinn eru hætt að fljúga til Kína vegna Kórónuveirunnar sem hefur breiðst hratt um Kína undanfarna daga.
„Því miður er þessi staða komin upp, það lá í loftinu í síðustu viku að það yrði mjög erfitt að halda uppi þjónustu til og frá Kína en við vonuðumst til þess að við myndum ekki þurfa að loka alveg fyrir póstflutninga þangað,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Póstsins, í samtali við Viðskiptablaðið.
Þá segir Hörður að það sé afar erfitt að segja til um hversu lengi þetta ástand muni vara.
„Við getum í raun lítið gert þar sem okkar þjónustuaðilar eru hættir að taka við sendingum til landsins. Það er afar erfitt að segja til um hve lengi þetta ástand muni vara en við vonumst að sjálfsögðu til að það verði ekki lengi. Um leið og opnast fyrir möguleikann aftur munum við láta vita af því.“