Íslendingar flýja unnvörpum í sólina

Það rigndi hvern ein­asta dag í maí sem var met í Reykja­vík, úrkoman var nær þrefalt meiri en í með­al­ári. Það hefur aðeins gerst fjórum sinnum áður, frá því mæl­ingar hófust í Reykja­vík fyrir meira en hund­rað árum síð­an, að rignt hafi hvern ein­asta dag í heilan mán­uð. Í ofaná­lag var svo óvenju kalt líka.

Júní var litlu skárri, aðeins fimm dagar voru þurrir í mán­uð­inum og úrkomu­daga­­fjöldi í júní hefur ekki verið slík­­ur í Reykja­vík nema tvisvar áður, árin 1960 og 1983.

Há­­marks­hiti árs­ins í Reykja­vík í maí og júní var ekki nema 14,3 stig og hæsta hita­tala í júní 13,2 stig.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-07-24-islendingar-flyja-umvorpum-i-solina/