Íslendingar fara þvert á hollráðin

Jafnt ríkjandi hægristjórn og vinstri stjórnin á síðasta kjörtímabili hafa ekki haft döngun í sér til að gera nauðsynlegar kerfisbreytingar hér á landi til að auka hér hagsæld, velferð og verðmætasköpun.

Þetta er mat Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra en í nýjasta pistli hans er bent á mikilvægi framleiðni í efnahagslífinu sem sé vel að merkja betri mælikvvarði á vöxt og viðgang þjóðarbúsins en hagvöxtur. Hér á landi sé framleiðni fjórðungi minni en á Norðurlöndunum, en svo virðist sem íslensk stjórnvöld fyrr og síðar skeyti þar engu um.

Hann minnir á að nú séu liðin fjögur ár frá því skýrsla McKinsey hafi komið út. Hún hafi dregið með skýrum og málefnalegum hætti athyglina að þessum höfuðvanda í íslenskum þjóðarbúskap: \"Ofmælt væri að segja að skýrslan hafi verið hundsuð. En stjórnamálaflokkarnir hafa farið í kringum kjarna málsins í henni eins og köttur sem fer í kringum heitan graut,\" skrifar Þorsteinn og minnir á að á þessum tíma hafi tvær ríkisstjórnir haft tækifæri til þess að leggja fram efnahagsáætlun með kerfisbreytingum sem miðuðu að því að bæta framleiðnina: \"Hvorug þeirra hefur gert það. Það er eitt stærsta pólitíska vandamálið sem við blasir.\"

Hann rifjar upp að eitt af hollráðum McKinsey hafi lotið að þróun ferðaþjónustunnar. Þar hafi verið sagt nokkuð skýrt og skorinort að markmiðið ætti að vera verðmætasköpun og aukin framleiðni fremur en magn eða fjöldi ferðamanna: \"Við fórum hina leiðina. Þvert á hollráðin,\" skrifar Þorsteinn.

Hann rekur fleiri dæmi í grein sinni sem lesa má í heild sinni pistlamegin á forsíðu vefsins, en undir lok hennar minnir þessi reynslumikli stjórnmálamaður á tregðulögmálið á Íslandi: \"Framleiðni kallar á margs konar kerfisbreytingar á ýmsum sviðum. Þær raska við rótgrónum hagsmunum. Trúlega er óttinn við að hreyfa við þeim skýring á þögninni um þetta viðfangsefni fremur en skilningsskortur. Það athyglisverða er að allir þingflokkarnir eru á sama báti að því er þetta varðar. Þeir eiga gleymskuna saman.\"