Íslendingar fagna langþráðum sigri

Úrvaldsdeildarliðið Leeds hefur lengi átt dyggan aðdáendahóp á Íslandi. Þótt töluverður tími sé liðinn frá gullaldarárum liðsins hafa hinir hörðustu aldrei yfirgefið uppáhaldsliðið sitt og þeir hinir sömu gátu tekið glaðan dag á ný síðastliðið vor þegar ljóst varð að Leeds myndi spila í sjálfri úrvaldsdeildinni á ný eftir mörg ár í neðri þjóðfélagsstigum ensku knattspyrnunnar.

Leedssamfélagið á Íslandi hefur því blómstrað þennan veturinn og fyrir helgina gerðu margir sér ferð yfir til Englands til að hvetja sína menn áfram í botnbaráttuleik gegn Norwich city.

Sú ferð var sannarlega til fjár því Leeds sigraði leikinn 2-1 með mörkum frá Rodrigo og Gelhardt. Sá síðarnefndi er, samkvæmt heimildum Hringbrautar í töluverðu uppáhaldi hjá íslenskum Leedsaðdáendum.

Liðið er því að spila vel í baráttu gegn falli, allavega í dag.

Liðið er nú í sextánda sæti, tveimur sætum frá fallsæti. Staðan er þó enn viðkvæm enda eiga liðin á botninum einn til tvo leiki til góða.

Meðal fjölmargra sem ferðuðust yfir hafið til að hvetja sína menn er Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar sem fór með eiginmanninum Eiríki Hermannssyni, forföllnum Leedsara.