Íslendingar elska netflix - hlutfall áskrifenda eykst með hverju ári

Nær þrír af hverjum fjórum landsmönnum eru með áskrift að Netflix á heimilum sínum samkvæmt nýrri könnun MMR. Er það aukning um 5 prósentustig frá könnun síðasta árs. Hlutfall þeirra sem segjast vera með áskrift að Netflix eða búa á heimili þar sem einhver heimilismanna er með áskrift að streymisveitunni hefur aukist árlega frá því að mælingar MMR hófust árið 2016.

Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni kváðust 72 prósent vera með áskrift að Netflix á heimilum sínum, 26 prósent sögðu áskrift að Netflix ekki vera til staðar á heimilum sínum og 1 prósent sögðu áskrift ekki vera til staðar á heimilinu en að hún yrði keypt á næstu 6 mánuðum.

Svarendur í yngsta aldurshópi, 18-29 ára, reyndust líklegust til að segjast hafa aðgang að Netflix en 92 prósent þeirra sögðu áskrift að streymisveitunni vera til staðar á heimilum sínum, samanborið við 75 prósent þeirra á aldrinum 30-49 ára og 73 prósent þeirra á aldrinum 50-67 ára. Af svarendum í elsta aldurshópi, 68 ára og eldri, kváðust 17 prósent hafa aðgang að Netflix á heimilum sínum en 4% kváðu líklegt að áskrift yrði keypt á næstu 6 mánuðum.

Svarendur búsettir á höfuðborgarsvæðinu reyndust líklegri til að segja áskrift að Netflix vera til staðar á heimilum sínum, eða 76 prósent, samanborið við svarendur af landsbyggðinni, 65 prósent. Lítill munur reyndist á aðgengi að Netflix eftir kyni.

Ef litið er til stjórnmálaskoðana kemur í ljós að stuðningsfólk Viðreisnar, 84 prósent, og Pírata, 80 prósent, reyndust líklegust til að segja áskrift að Netflix vera til staðar á heimilum sínum. Stuðningsfólk Vinstri grænna, 61 prósent, og Framsóknarflokksins, 64 prósent, reyndist ólíklegast til að segja áskrift vera til staðar. Þá var stuðningsfólk Flokks fólksins, 11 prósent, og Miðflokksins, 6 prósent, líklegast til að segja að áskrift að Netflix yrði keypt á næstu 6 mánuðum.