Sala áfengis var tæplega 2% meiri í lítrum talið í júnímánuði samanborið við sama mánuð í fyrra. Sé horft til fyrstu sex mánaða ársins er salan tæplega 1% meiri en árið 2014.
Íslendingar hafa drukkið meira af rauðvíni það sem af er ári, en söluaukning var tæplega 2% samanborið við sama tímabil í fyrra. Hvítvínssala hefur þó farið minnkandi. Mest var aukningin í sölu á blönduðum drykkjum, en í júní jókst hún um tæp 60% milli ára.