Íslendingar dragi úr hvalveiðum

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra telur nauðsynlegt að mæta gagnrýni á hvalveiðar á alþjóðavettvangi. Málið sé umhugsunarefni fyrir Íslendinga sem þurfi að íhuga að draga úr veiðunum. 

Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Skessuhorns.

Hann segir Ísland gjarnan vera litið hornauga á alþjóðavettvangi sökum veiðanna: „Við eigum þó mjög gott samstarf við Bandaríkin í það heila þó hvalveiðarnar standi í vegi fyrir ákveðnum hlutum. Okkur hefur ekki verið boðið á suma fundi og ráðstefnur sem varða málefni hafsins.\"

Gunnar er þó ekki þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi að gefa eftir réttinn til að nýta auðlindina frekar en hverja aðra. Málið sé þó vissulega umhugsunarefni: „En það er umhugsunarefni fyrir okkur hvort við ættum ekki að koma til móts við alþjóða hvalveiðiráðið til að mynda með því að veiða færri hvali árlega en við gerum nú.\"