Öll gerðum við einhverja fremur heimskulega hluti í æsku, oft minningar sem sitja lengi í okkur. Áhrifavaldurinn og aðgerðarkonan Ólöf Tara setti af stað þráð á Twitter um slíkt, hefur þráðurinn vakið mikla athygli og fyllst af vandræðalegum atvikum.
Sjálf skipti hún á hjóli og litlu systur:
Hlutir sem þið gerðuð í æsku sem meika ekkert sense?
— Ólöf Tara (@OlofTara) August 12, 2021
Ég gerði skiptidíl við vin minn.
Honum langaði í litla systur og mér BMX hjól.
Ég kom svo heim þann daginn á hjólinu og sagði mömmu að ég hefði bíttað.
Þurfti að skila hjólinu.
Sigga nokkur segir: „Setti módellím í augað á mér eftir að hafa séð mömmu nota maskara. Daginn sem ég losnaði við umbúðir af auganu kom mamma að mér inni á baði að fara að tússa augað.“
Þetta er ekki eina atvikið sem Sigga man eftir: „Ég stal blómum úr görðum nágrannanna og bjó til vendi. Gekk svo í hús og seldi þeim eigin blóm á 50kr.“
Guðný nokkur og frænka hennar keyptu gullfiska: „Við frænka mín vorum óútreiknanlegar saman og erum það reyndar enn. Keyptum einu sinni tvo gullfiska í dýrabúð því þeir voru svo ódýrir. Keyptum ekki búr eða mat. Bara tvo fiska.“
Guðný kannast við annað atvik: „Vinkona mín fann síðan Playboy-tímaritin sem eldri bræður hennar áttu og dreifði þeim í póstlúgurnar í nágrenninu.“
Ingibjörg lék á frænku sína:
„Þegar ég nennti ekki að taka til þá opnaði ég “lúgusjoppu” í herberginu mínu og lét frænku mína afgreiða mig. Ég semsagt sat í bílnum (rúminu) og lék algjöra Karen að hneykslast á draslinu og hún þurfti að taka til eins hratt og hún gat.“
Helga hrekkti vinkonu sína: „Ég stal afruglarafjarstýringu heima hjá vinkonu/óvinkonu og sat um húsið hennar nokkur kvöld í röð og skipti um stöð heima hjá henni. Við bjuggum í útnára og ekki hlaupið að því ca.'96 að fara og fá nýja fjarstýringu.“