Íslendindar þjást af skammsýni

"Við höfum farið mjög illa að ráði okkar," segir Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi í þættinum Mannamáli á Hringbraut sem frumsýndur var fyrr í vikunni en þar gagnrýndi hann harkalega hversu gengið hefur verið nærri innviðum samfélagsins á síðustu árum.


"Margt af þessu sem gert hefur verið á kostnað velferðarkerfsins er óafturkræft. Í besta falli tekur það mörg, mörg ár að laga það sem miður hefur farið," segir læknirinn sem var mjög þungorður um aðför stjórnmálamanna að heilbrigðisisstofnunum og menntastofnunum um allt land á síðustu árum, ekki aðeins eftir hrun heldur líka í aðdraganda þess. "Það er hreinlega sorglegt að sjá hvernig við höfum leikið okkur sjálf sem samfélag," segir hann.


"Við horfum svo stutt fram á veginn," segir Þórarinn í þættinum. "Við erum alltaf að hugsa um stundarávinning," segir hann og telur það einkum og sér í lagi eiga við um stjórnmálamenn, hvar í flokki svo sem þeir standa. "Þetta ágæta fólk þjáist af skammsýni," heldur hann áfram og segir poólitíkusa alltaf hugsa innan eins kjörtímabils og innan eigin flokks, allt sem aðrir geri þvælist fyrir þeim og verði að leiðrétta. Þess vegna miði okkur ekkert áfram.


Þórarinn segir að samfélagsgerðin muni ekkert breytast nema landsmenn - og þá einkum stjórnmálamenn - hefji sig upp úr dægurþrasinu, rétti úr hausnum og líti yfir sviðið; allir sæmilega uppréttir menn eigi að sjá hvað þurfi að gera. Hér þurfi að byggja upp öruggt og boðlegt samfélag fyrir alla til framtíðar. Ef að er gáð séu auðvitað allir sammála um forgangsröðunina; hún eigi að snúast um uppeldi barna okkar, menntun þeirra og heilbrigði alls fólks svo það geti unnið og gert gagn í samfélaginu. Heilberigðiskerfið verði að hugsa meira um heilbrigt fólk en aðeins þá sem eru dauðvona. Heilbrigðiskerfið verði að vera eins og gott menntakerfi sem skili betra fólki frá sér en það tók við.


Hægt er að horfa á allan þáttinn hér: