Íslandsstofa skoðar hneykslisskaða

Inga Hlín Pálsdóttir, Íslandsstofu, staðfestir í samtali við Hringbraut að Íslandsstofa sé að kanna hvort skaði geti orðið á hagsmunum íslenskrar ferðaþjónustu vegna stjórnmálahneykslisins sem tengist Tortóla og varðar ekki síst forsætisráðherra Íslands. Ísland er fréttaefni út um allan heim í augnablikinu og í neikvæðu tilliti eftir afhjúpun Panamaskjalanna. Íslandsstofa hefur sent pósta á almannatengslafyrirtæki utan landsteinanna í morgun til að meta hvort eða hvaða áhrif geti orðið af málinu. Inga Hlín segist vita betur í lok dagsins hvort neikvæð áhrif gætu orðið hér á landi af umfjölluninni en Íslandsstofa sér um ímyndarmál Íslands er varðar ferðaþjónustu.
Hringbraut hefur heyrt í forsvarsfólki ferðaþjónustufyrirtækja sem lýsir áhyggjum. Bæði muni hneykslið hafa áhrif á komur ferðamanna sem og e.t.v. upplifun þeirra á meðan á dvöl þeirra stendur, að vera stödd í spilltu ríki. Hringbraut hefur upplýsingar um að Íslendingur sem rekur heimagistingu á Suðurnesjum hafi fengið 8 afbókanir á 10 mínútum eftir að fréttir voru birtar um íslenska spillingu í gær, allar frá útlendingum.

Spilling æðstu ráðamanna hér á landi rifjar upp alheimsumræðu um bankahrunið 2008, tengsl stjórnmálamanna og viðskiptamanna sem áttu þátt í að fjöldi fólks út um allan heim tapaði miklu fé vegna íslensku bankanna.
\"Við tékkum á hvað er að gerast,\" segir Inga Hlín. Hún segir erfitt að svara þeirri spurningu að svo stöddu hvort það geti haft skaðaminnkandi áhrif á hagsmuni ferðaþjónustu ef forsætisráðherra segi af sér störfum, fyrst þurfi að liggja fyrir að um einhvern skaða sé að ræða. Hún muni vita meira í dagslok.

Óöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri segir í samtali við Hringbraut að of snemmt sé að spá í afleiðingar.  Íslandsstofa hafi frá því að hún var stofnuð haft með höndum það hlutverk að efla ímynd og orðspor Íslands skv. lögum. \"Starfsfólk hennar tekur ætíð stöðuna á umræðu um landið í erlendum fjölmiðlum, ekki síst þegar athyglin beinist að landinu vegna tiltekinna mála sem markverð teljast. Ég veit að þau hafa verið í sambandi við sínar PR stofur á erlendri grundu og eru að fylgjast með. Að öðru leyti tel ég kannski ekki tímabært á þessari stundu að meta þá stöðu sem upp er komin,\" segir ferðamálastjóri í samtali við Hringbraut.