Íslandspóstur segir upp framkvæmdastjórum og flytur höfuðstöðvar sínar í sparnaðarskyni

Forstjóri Íslandspósts, Birgir Jónsson, tilkynnti starfsfólki á starfsmannafundi í höfuðstöðvum fyrirtækisins, í dag um viðamiklar breytingar sem fram undan eru hjá fyrirtækinu og hafa verið samþykktar af stjórn fyrirtækisins. Megin tilgangur breytinganna er að setja þjónustu Íslandspósts í forgang og þá sérstaklega stafræna þjónustu, að viðskiptavinir geti sjálfir ákveðið með hvaða hætti þeir nýti þjónustu Póstsins. Samhliða þessum breytingum verður fækkun í framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórar voru fimm en verða þrír.

„Breytingum á skipuriti Íslandspóst er ætlað að ná fram hagræðingu í rekstrinum, búa til nýjan og öflugan hóp lykilstjórnenda, efla liðsheild og auka og hraða upplýsingaflæði innan fyrirtækisins. Með þessum skipulagsbreytingum drögum við úr rekstrarkostnaði hjá fyrirtækinu samhliða því að auka þjónustu við viðskiptavini okkar. Þessar breytingar sem við gerum núna eru einungis fyrstu skrefin, fram undan er mikil hagræðing og kostnaðaraðhald, en þó er mikilvægt að undirstrika að það verður gert án þess að þjónusta skerðist, en því náum við með léttari yfirbyggingu. Hjá Íslandspósti starfar mjög öflugur hópur af hugmyndaríku og reyndu fólki sem er tilbúið að laga reksturinn að nútímanum og sækja fram. Stafrænir tímar kalla á nýjar lausnir og skapa um leið mörg áhugaverð og skemmtileg tækifæri og gera okkur kleift að veita enn betri þjónustu en áður,” segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.

Einnig er fyrirhugaður flutningur skrifstofa frá Stórhöfða yfir í Höfðabakka 9.  Samkvæmt Íslandspósti næst með þessu töluverð hagræðing í húsnæðiskostnaði þar sem um umtalsvert færri fermetra er að ræða en nú eru nýttir og betri samnýtingu á mötuneyti og annarri starfsmannaaðstöðu.