Póst- og fjarskiptastofnun hefur fallist á að veita Íslandspósti 1.463 milljónir króna úr jöfnunarsjóði alþjónustu. Óvíst er hvaðan fjármunirnir eiga að koma þar sem sjóðurinn er tómur. Fjallað er um málið í Viðskiptablaðinu.
Jöfnunarsjóður alþjónustu er tómur þar sem hann hefur aldrei verið virkjaður. Rekstrarleyfishöfum ber lögum samkvæmt að greiða í sjóðinn en það hefur þó aldrei verið gert.
Í október á síðasta ári sótti Íslandspóstur um framlag úr sjóðnum vegna ófjármagnaðrar alþjónustubyrði á árunum 2013-17. Alls var sótt um 2,6 milljarða úthlutun en hluta umsóknarinnar var vísað frá af Póst- og fjarskiptastofnun.
Í dag féllst stofnunin á að tap vegna erlendra póstsendinga teldist til alþjónustubyrðar og féllst því á þann hluta umsóknarinnar að hluta. Taldi stofnunin að kröfur fyrir árið 2013 auk hluta ársins 2014 væru fyrndar. Eftir ákvörðunina kom til álita að láta fyrirtæki á markaðnum greiða afturvirkt í jöfnunarsjóð alþjónustu, sem hefði þýtt að um 80 prósent upphæðarinnar hefði komið frá sjálfum Íslandspósti.
Í tilkynningu frá Póst- og fjarskiptastofnunin segir að jöfnunargjaldsleiðin myndi því ekki leysa þann vanda sem upp er kominn í rekstri Íslandspósts, sem tengist hinum erlendu póstsendingum. Segir einnig að sú leið myndi á án efa valda öðrum markaðsaðilum verulegum vandræðum. „Í því samhengi megi einnig benda á að í frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu, sem nú liggur fyrir [á] Alþingi, sé jöfnunarsjóður lagður niður og þess í stað kveðið á um að kostnaður vegna alþjónustu muni verða greiddur úr ríkissjóði.“
Því er ekki loku fyrir það skotið að ríkið muni fjármagna greiðsluna til Íslandspósts og óljóst er hvort sú greiðsla myndi bætast við fyrirhugaða 1,5 milljarðs króna hlutafjáraukningu Íslandspósts.