Með tillögu slitastjórnar Glitnis, sem barst ráðuneytinu með bréfi í gær, leggja kröfuhafar þetta til. Gangi þetta eftir eignast ríkið þar með Íslandsbanka að fullu. Eignarhluturinn er allt hlutafé ISB Holdings í Íslandsbanka, sem er 95% hlutafjár Íslandsbanka hf, eða sem nemur 185 milljörðum króna, en það var eigið fé bankans nú um mitt ár.
Vegna breytingatillögu kröfuhafa falla þættir úr fyrri tillögum þeirra niður, þar á meðal afkomuskiptasamningur um arðsemi hlutafjár Íslandsbanka, skilyrt skuldabréf að fjárhæð 119 milljarða króna, 16 milljarða króna arðgreiðsla Íslandsbanka í erlendum gjaldeyri auk annarra fyrirhugaðra arðgreiðslna.
Á vefsíðu ráðuneytisins segir að framkvæmdahópur um losun fjármagnshafta telji þessar aðgerðir falla að stöðugleikaskilyrðum stjórnvalda. Verði tillögurnar að veruleika, er það mat framkvæmdahópsins að forsendur séu fyrir undanþágu frá gjaldeyrishöftum.