Íslandsbanki er kominn í eigu ríkisins, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Þar er haft eftir Ingólfi Haukssyni, framkvæmdastjóra Glitnis að búið sé að afhenda ríkinu allt stöðugleikaframlag slitabúsins.
Inni í framlaginu var 95% hlutur í Íslandsbanka. Eigið fé Íslandsbanka nam um 185 milljörðum króna um mitt síðasta ár. Þá segir í
Fréttablaðinu að einnig hafi verið afhentir eignarhlutir slitabúsins í ýmsum íslensum fyrirtækjum - meðal annars hlutir í Sjóvá, Reitum og lítill hlutur í Eimskip. Lán Glitnis til Reykjanesbæjar hafa einnig verið afhent ríkinu.