Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum alfarið frá ferðalögum til Túnis að svo stöddu vegna ótryggs ástands þar í landi og hættu á hryðjuverkum.
Ráðuneytið sendi frá sér tilkynningu þessa efnis nú síðdegis og ráðleggur það fólki að fylgjast með ferðaleiðbeiningum annarra ríkja, t.d. Norðurlandanna og Bretlands, þar sem aðstæður geta breyst með skömmum fyrirvara.
Hálfur mánuður er liðinn frá því 38 ferðamenn, þar af þrjátíu Bretar, voru drepnir af byssumanni á baðströnd og við hótel í Port El Kantanoui, skammt frá Sousse. Herská samtök súnníta í Sádi Arabíu, sem eru tengd Íslamska ríkinu, lýstu yfir ábyrgð á voðaverkinu.
Tilkynningin frá íslenska utanríkisráðjuneytinu kemur í kjölfar álíka yfirlýsingar frá utanríkisráðuneyti Bretlands í morgun sem brýndi fyrir Bretum í Túnis að yfirgefa landið undir eins þar sem „mjög miklar líkur“ séu á að fleiri hryðjuverkaárásir séu yfirvofandi.
Búið er að fjölga flugferðum frá landinu og tvær breskar ferðaskrifstofur staðsettar í Túnis hafa ákveðið að senda starfsfólk sitt aftur til Bretlands.
Breska utanríkisráðuneytið segir að breskir ferðamenn eigi að yfirgefa landið nema þeir þurfi nauðsynlega að dvelja þar. Þá er brýnt fyrir fólki að ferðast alls ekki til Túnis nema bráð nayðsyn krefji.
Talið er að hátt í fjögur þúsund Bretar séu í sumarleyfi í Túnis.
Ekki er vitað hversu margir Íslendingar eru í landinu.