Ísland virkur þátttakandi í starfi nato

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók við því starfi hinn 11.1.sl. Hann situr sinn fyrsta ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel. Að vísu er þetta fundur varnarmálaráðherra NATO en þar sem Guðlaugur Þór fer með varnarmál notar hann tækifærið til að hlýða á varnarmálaráðherra  NATO. 

Guðlaugur Þór segir: „Því miður hafa öryggishorfur í Evrópu versnað á umliðnum árum og Atlanthafsbandalagið brugðist við með því að auka varnarviðbúnað sinn.“ Guðlaugur Þór bætir því við að öll NATO ríki verði að leggja sitt að mörkum. Þar sé Ísland ekki undanskilið. 

Framlag Íslands á síðustu árum og áratugum skiptir máli og er mikils metið segir Guðlaugur Þór. Atlantshafsbandalagið er meðal hornsteina í utanríkis- og varnamálastefnu Íslands. Ísland hefur aukið framlög og borgaralega þátttöku í störfum NATO. Ísland mun halda áfram á þeirri braut segir Guðlaugur Þór.

Nánar á www.utanrikisraduneyti.is