Ísland var ekkert einsdæmi

Enn verið að skoða orsakir hrunsins og eftirmál – og í ár hefur gefist ærið tilefni -10 ár síðan efnahagshrunið skók íslenskt þjóðfélag og efnahagslíf - og sálarlíf. Þann 6.október 2008 sagði Geir Haarde “Guð blessi Ísland”.

 Björn Jón segir í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld t.d. að oft gleymist að hrunið var alþjóðlegt og staða Íslands var ekki eins sérstök í efnhagslegu tilliti eins og oft er rætt um. Hann rekur upphafið til viðskipta Orca hópsins sem keypti Íslandsbanka. 

Fáir hafa skrifað jafn mikið um Hrunið og Björn Jón Bragason sagnfræðingur og lögfræðingur. Við munum taka viðtalsröð í framhaldi af spjalli okkar í kvöld um Hrunið á 10 ára tímamótum - líka um það sem er ósagt um orsök og afleiðingar. Björn Jón í þættinum okkar 21 í kvöld milli 21 og 22.

Björn Jón hefur að stærstum hluta nýtt rannsóknartíma sinn undanfarinn áratug í skrif sem tengjarhruninu, orsökum þess og afleiðingum.

 Bækur hans eru þrjár: Bylting og hvað svo? sem kom út 2015. Árið síðar kom út Gjaldeyriseftirlitið – Vald án eftirlits? Og svo síðast og þriðja bókin: Í liði forsætisráðherrans eða ekki? Að auki hefur Björn Jón birt greinar t.d. í Sögu tímariti um sölu Búnaðarbankans eftir að nýjar upplýsingar litu dagsins ljós í rannsóknarsskýrslu og einnig hefur hann birt rannsókn á hruni Straums-Burðaráss. 

Í þættinum 21 verður á næstu vikum birt viðtalsröð Björns Jóns vegna hrunsins.