Ísland úr leik á em í póllandi

Ísland er úr leik á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla í Póllandi eftir dapra frammistöðu gegn baráttuglöðum og einbeittum Króötum í síðasta leik B-riðils í gærkvöld. Leiknum lyktaði með 37 mörkum Króata gegn 28 mörkum Íslendinga.

Ísland hafnaði í neðsta sæti riðilsins, vann aðeins fyrsta leikinn gegn Norðmönnum, en tapaði svo næstu tveimur, gegn Hvítrússum og Króötum. Þessi úrslit þýða að Norðmenn standa best að vígi eftir riðiliinn og fara með fjögur stig í milliriðil. Tapið gegn Íslendingum í fyrsta leik riðilsins hleypti þeim greinilega kapp í kinn.

Íslenska liðið virtist vart mætt til vallar í byrjun leiks í kvöld og komust Króatar strax í vænlega stöðu, en íslenska liðið skoraði einungis þrjú mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Leikur þess var ráðvilltur og tæknivillur fleiri en þekkst hafa í flestum fyrri leikjum liðsins. Lykilmenn á borð við Aron Pálmarsson náðu sér aldrei á strik - og enda þótt heldur lifnaði yfir liðinu í seinni hluta síðari hálfleiks var tíu marka bilið á milli liðanna, sem varði lengst af leiks, einfaldlega of mikið fyrir sveimhuga leikmenn þess. 

Ísland hefur ekki fallið svona snemma úr leik á Evrópumóti í handknattleik frá því árið 2004.

Úrslitin þýða að ólympíudraumur íslenska liðsins í Brasilíu í ágúst á þessu ári eru úr sögunni.