Ísland undirritar fyrst ríkja alþjóðlegan sáttmála um rétt allra til táknmáls

„Sáttmáli Alheimssamtaka heyrnarlausra um rétt allra til táknmáls var undirritaður á Bessastöðum í gær við hátíðlega athöfn. Alheimssamtökin gerðu sáttmálann í tilefni af alheimsþingi heyrnarlausra sumarið 2019 og er Ísland fyrst ríkja heims til að undirrita hann.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.

Þar segir einnig að sáttmálinn undirstriki meðal annars ábyrgð og skyldur stjórnvalda og hagsmunaaðila til að tryggja réttlátt samfélag og jafnt aðgengi að menntun fyrir alla. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sagði við það tilefni:

„Það er mér mikil ánægja að undirrita þennan sáttmála á degi íslenska táknmálsins og þegar Félag heyrnarlausra fagnar 60 ára afmæli sínu. Íslenskt táknmál er fyrsta mál fjölda Íslendinga og við þurfum að að efla rannsóknir, kennslu og námsefnisgerð er því tengist. Við viljum tryggja að allir hafi jöfn tækifæri til menntunar, efling íslenska táknmálsins er liður í því.“

Sáttmálann undirrituðu:

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands,
Frú Vigdís Finnbogadóttir verndari íslenska táknmálsins,
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra,
Heiðdís Dögg Eiríksdóttir formaður Félags heyrnarlausra,
Bryndís Guðmundsdóttir formaður málnefndar um íslenskt táknmál og fulltrúar málnefndarinnar,
Kristín Lena Þorvaldsdóttir forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra,
Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands,
Hanna H. Leifsdóttir fyrir hönd skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, 
Kristrún Guðmundsdóttir skólastjóri Hlíðaskóla,  
Guðrún Thorarensen leikskólastjóri Sólborgar og starfsmennirnir,
Margrét Stefánsdóttir formaður foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra, 
Óskar H. Nielsson fulltrúi Menntamálastofnunnar.