Ísland vann norðmenn á em!

Ísland vann Noreg með eins marks mun í fyrsta leik karlaliðsins á EM í handbolta, í æsispennandi leik þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu sekúndum

Norðmenn voru alltaf með undirtökin í fyrri hálfleik, staðan í leikhléi var 11-10 fyrir Noreg og gat munurinn verið meiri. Aron Pálmarsson skoraði þá flest mörk Íslendinga, 3. Sóknarleikurinn var lélegur en vörnin góð.

Í seinni hálfleik byrjaði Ísland vel og jafnaði leikinn 11.11. Hvarfpunktur leiksins kom svo á 40. mínútu þegar Arnór Atlason var rekinn út af eftir að hafa skrifað gott mark. Guðjón Valur fyrirliði liðsins stal boltanum eftir mistök Norðmanna þegar Ísland var einum manni færri, rauk upp og skoraði. Aron Pálmarsson dúndraði svo knettinum skömmu síðar í norsku netmöskvana og allt í einu var Ísland með 3ja marka forskot.

Norðmenn áttu ekki svar tl sigurs eftir það en jöfnuðu nokkrum sinnum leikinn.

Aron Pálmarsson lék best Íslendinga, skoraði alls 9 mörk. Björgvin Páll stóð sig einnig vel á þýðingarmiklum tímapunktum, varði nokkur víti og allmörg skot og Guðjón Valur óx með hverri mínútunni og átti mikilvæg vítaskot undir lokin sem skiluðu öll mörkum.

Stórkostlegt línumark Róberts Róbertssonar er fimm mínútur voru til leiksloka verður lengi í minnum haft, þá skaut hann aftur fyrir sig eins og hann er kunnur fyrir. Svo skoraði hann þýðingarmikið mark í næstu sókn.

Darraðardans var stiginn í lokin en sigurinn féll Íslands megin þegar Guðjón Valur skoraði úrslitamarkið 12 sekúndum fyrir leikslok eftir frábæra sókn strákanna okkar. Norðmenn fengu stutta sókn en Björgvin Páll varði lokaskotið. Lokatölur 26-25 fyrir Ísland.

Ísland leikur í B-riðli Evr­ópu­móts karla í hand­knatt­leik en leikið er í Spodek-höll­inni í Katowice í Pól­landi.