Ísland opnar gátt fyrir kínverja

Fríverslunarsamningur Íslands og Kína opnar ekki aðeins Kínverjum leið til fjárfestinga á Íslandi heldur gefur það Íslendingum færi á að fá önnur lönd til að festa fjármuni sína hér á landi svo þau geti flutt úr sínar vörur til Kína.

Þetta segir Þórður H. Hilmarsson forstöðumaður fjárfestingarsviðs Íslandsstofu í Morgunblaðinu í dag, spurður út í, að því er virðist, aukinn áhuga Kínverja á fjárfestingum hér á landi. Er þar skemmst að minnast áforma kínversks ríkisfyrirtækisins á að koma á fót álveri á Hafursstöðum í Skagabyggð í samvinnu við íslenska félagið Klappir og annars kínversks stórfyrirtækis sem hyggst fjárfesta í Carbon Recycling fyrir um sex milljarða króna á næsta ári.

Þórður metur það ekki svo að áhugi Kínverja á fjárfestingum hér á landi hafi aukist í sjálfu sér frá því að fríverslunarsamningurinn hafi verið gerður; almennt séu Kínverjar að fjárfesta utan Kína, en fjárfestingaráhuga þeirra hér á landi sé ekkert meiri en verið hefur undanfarin ár.

En hann telur samninginn opna gátt fyrir bæði löndin: \"Það er áhugi fyrir því að koma til Íslands og áhugi á Íslandi sem fríverslunarsvæði til þess að flytja út til Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada. Á sama hátt  opnar þetta á tækifæri fyrir Ísland að nýta þennan fríverslunarsamning til að laða að fyrirtæki  frá Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu til þess að setja upp starfsemi hér á landi til að flytja út til Kína,\" er haft eftir Þórði í blaðinu.