Ísland opið fyrir þrælahald

 Meðan starfsmannaleigur, sem sumar hverjar fara illa með verkafólk, mega flytja hingað nánast óheft að starfsmönnum er þungt fyrir annað fólk að fá vera hér á landi. Þetta kom fram í útvarpsþætti Þjóðbrautar, sem var á dagskrá útvarps Hringbrautar, í morgun. Helga Vala Helgadóttir lögmaður, sem þekkir vel til þessara mála, sagði margar starfsmannaleigur fara illa með verkafólk, borgi þeim til að mynda oft laun sem eru langt frá umsömdum launum.

Helga Vala og Jón Páll Eyjólfsson, leikhússstjóri á Akureyri, voru sammála um að slíkt sé óviðunandi. Þau fagna bæði hversu fólki af erlendi bergi brotnu hefur fjölgað hér á landi.

Á sama tíma gagnrýna þá stefnu sem hér rekin.