Á sunnudagskvöld klukkan 20:00 hefur göngu sína Ísland og umheimur, ný þáttaröð sem mun fjalla um samstarf Íslendinga við umheiminn á vettvangi efnahagsmála, viðskipta, varna og stjórnmála. Í þáttunum er fjallað um þessi mál á öðruvísi og dýpri hátt en alla jafna er gert í daglegri fréttaumfjöllun. Með umsjón fer Davíð Stefánsson.
Í fyrsta þættinum ræðir Davíð við Ingu Hlín Pálsdóttur, forstöðukonu Visit Iceland hjá Íslandsstofu, og Guðmund Þóroddsson, stjórnarformann Reykjavík Geothermal.
Samhljómur um vörumerkið Ísland
Íslandsstofa, sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda til að auka útflutningstekjur og hagvöxt, er leiðandi í kynningu á íslenskri menningu, vörum og þjónustu erlendis. Rætt er við Ingu Hlín Pálsdóttur forstöðukonu „áfangastaðarins Íslands“ en hún leiðir markaðssetningu á Íslandi erlendis.
Tækifærin í orku Afríku
Afríka telur um 1300 milljónir manna. Þörfin á uppbyggingu innviða álfunnar er gríðarleg, ekki síst á sviði orkumála. Íslenska orkufyrirtækið Reykjavík Geothermal vinnur í samstarfi við stjórnvöld Eþíópíu að uppbyggingu tveggja fimmhundruð megavatta jarðhitavirkjana, en í Austur Afríku eru ein bestu jarðhitasvæði heims. Rætt er við Guðmund Þóroddsson stjórnarformann um félagið og risaorkuverkefnin í Eþíópíu.
Sjáðu stiklu fyrir Ísland og umheimur hér: