Tvíhliða samskipti Íslands og Rússlands, málefni norðurslóða og öryggismál í Evrópu voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í Rovaniemi í Finnlandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir einnig að fundurinn hafið verið haldinn í aðdraganda utanríkisráðherrafundar Norðurskautsráðsins sem hefst á morgun. Þá mun Ísland mun taka við formennsku í ráðinu til tveggja ára og Rússland þar eftir. Auk málefna Norðurskautsráðsins ræddu ráðherrarnir tvíhliða samskipti ríkjanna, þ.m.t. innflutningsbann Rússlands á íslenskum sjávarafurðum. Ísland er á svörtum lista Rússa a vegna stuðnings íslenskra stjórnvalda við refsiaðgerðir sem Rússar sættu út af Úkraínudeilunni og innlimun Krímskaga. Bannið nær til innflutnings á mjólkurvörum, kjöti og flestum matvörum. Hefur bannið haft mikil áhrif á fiskútflutning frá Íslandi til Rússlands. Vladimír Pútín, forseti Rússlands skrifaði undir framlengingu á banninu sumarið 2018 og á það að gilda til lok þessa árs.
Utanríkisráðherra tók einnig upp mannréttindamál og stöðuna innan Evrópuráðsins þar sem uppi er ágreiningur við Rússland. Hvatti Guðlaugur Þór Rússland til áframhaldandi þátttöku í Evrópuráðinu, enda myndi brotthvarf þaðan fela í sér bakslag í mannréttindamálum í Rússlandi. Þá voru öryggismál í Evrópu rædd, þ.m.t. staðan í Úkraínu.
„Samskipti Rússlands og vestrænna ríkja hafa verið stirð, meðal annars í kjölfar átaka í Úkraínu og vegna stöðu mála í Sýrlandi og efnavopnaárásar á Bretlandi. Ísland mun ávallt standa vörð um alþjóðalög og virðingu fyrir mannréttindum og sýna samstöðu með nágrannaríkjum og vinaþjóðum þegar á sameiginleg gildi okkar reynir,“ sagði Guðlaugur Þór eftir fundinn.
„Það er jafnframt mikilvægt að viðhalda samtali og freista þess að draga úr spennu, og sannarlega eiga Rússland og Ísland sameiginlegra hagsmuna að gæta á norðurslóðum og langa sögu viðskiptatengsla. Því var mikilvægt að eiga orðastað við utanríkisráðherra Rússland um málefni sem við erum ýmist sammála eða ósammála um - og freista þess að horfa fram á veginn í samskiptum ríkjanna,“ sagði Guðlaugur Þór að loknum fundi.