Ísland nr. 24 í samkeppnishæfni þjóða

Ísland hækkar um eitt sæti á listanum yfir samkeppnishæfni þjóða á milli ára og situr nú í 24. sæti. Hækkunin er drifin áfram af aukinni skilvirkni í atvinnulífi og hjá hinu opinbera ásamt styrkari samfélagsinnviðum.


Á móti kemur, segir í tilkynningu frá Viðskiptaráði Íslands að efnahagsleg frammistaða er lakari en áður hér á landi og lækkar raunar um heil níu sæti. Munar þar mest um að hagvöxtur og hagvaxtarhorfur eru lakari en áður í alþjóðlegum samanburði.


Bandaríkin sitja enn í efsta sæti listans vegna skilvirkni í atvinnulífi, mikillar nýsköpunar og sterkra samfélagsinnviða. Hong Kong er í öðru sæti og Singapúr í því þriðja og færist nú upp á kostnað Sviss sem lækkar niður í fjórða sæti. Þar á eftir koma Kanada, Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Þýskaland en þau lönd halda öll stöðu sinni í efstu tíu sætunum.


Í tilkynningu Viðskiptaráðs segir að úttekt þessi á samkeppnishæfni þjóða sé ein sú umfangsmesta sem um getur. Úttektin samanstandi af yfir 300 undirþáttum. Tveir þriðju þeirra séu í formi haggagna sem safnað sé saman af samstarfsaðilum í hverju ríki fyrir sig. Þriðjungur byggi á alþjóðlegri stjórnendakönnun sem um 6,200 stjórnendur fyrirtækja og annarra samtaka taki þátt í.