Ísland missti leikinn í jafntefli

Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson komu íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu í þægilega 2:0 stöðu í fyrri hálfleik gegn nokkuð einbeittum Lettum á Laugardalsvelli í dag. Það dugði þó ekki til.

Í hálfleik var útlitið fyrir að íslenska liðið myndi landa heldur þægilegum sigri í sínum næstsíðasta leik í undanriðli EM í knattspyrnu, en liðið tryggði sér eftirminnilega farseðilinn í lokakeppnina í EM í Frakklandi með jafntefli gegn Kasökkum í síðasta leik.

Og svo fór að leikurinn í gær endaði einnig með jafntefli. Lettar minnkuðu muninn fljótlega í seinni hálfleik og fylgdu marki sínu eftir þegar komið var fram í miðjan seinni hlutann með góðu jöfnunarmarki á markteig.

Leikmenn íslenska liðsins virtust á köflum værukærir í seinni hálfleik, næsta saddir, enda búnir að tryggja sér þátttöku á stórmóti í fyrsta skipti í sögunni.

Eftir stendur þó að Ísland hefur einungis tapað einum leik í undanriðli sínum, gegn Tékkum úti í Pilzen, en þeir keppa við Tyrki í kvöld, en Hollendingar sem eiga enn von um að komast á EM lögðu Kasakka úti, 1:2.