Ísland minna en talið var

Ísland er heldur minna að flatarmáli en skólabókarlærdómur Íslendinga hefur kveðið á um til fjölda ára. Nýjar mælingar Loftmynda ehf sýna að stærð þess er 102,775 ferkílómetrar en ekki 103 þúsund ferkílómetrar eins og prentað hefur verið í minni landsmanna frá fyrsta skóladegi. Ekki ber að túlka þessar tölur sem svo að landið sé að minnka, heldur er nú beitt nákvæmari aðferðum og tækjum til að mæla strandlengjuna en í boði hafa verið fram að þessu. Þetta er ekki eina áfallið í landafræði Íslendinga því skemmst er að minnast mælinga á hæsta tindi landsins, Hvannbadalshnúki, sem reyndist ekki lengur vera 2119 metrar yfir sjávarborði heldur 9 metrum lægri. Þá hefur og komið í ljós að hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell, er 7 metrum lægra en haldið hefur verið, en nokkur bót í máli er að Herðubreið, þjóðarfjallið sjálft, reyndist vera 4 metrum hærra en fyrri mælingar sýndu í nýlegri yfirferð Loftmynda um landið.