Ísland með þriðja mesta jöfnuðinn

"Orðræðan um réttlátari skiptingu kökunnar er spiluð aftur og aftur og jafnframt er því haldið á lofti að ójöfnuður hafi aukist hér á landi," segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í nýjum pistli á hringbraut.is í tilefni af kjaraumræðuni og bendir á að alþjóðlegir stuðlar sem greini jöfnuð bendi til annars.


"Gini stuðullinn á Íslandi," skrifar hún  "var samkvæmt nýjustu tölum OECD 0,25 sem þýðir að við erum með þriðja mesta jöfnuðinn meðal OECD ríkja. En því er ekki haldið til haga né heldur að nær öll rík velferðarríki eru með minni jöfnuð. Hvers vegna er það svo," spyr þingflokksformaðurinn.


Hún bendir á eftirfarandi atriði: "Við vitum öll að hagur einstaklinga og heimila byggir á atvinnu og öryggi," og segir svo: "... hvorki skuldavanda né hinum félagslega vanda verður eytt nema fólk hafi vinnu, hafi tekjur til að greiða niður lán og ráðstöfunartekjur til að leyfa sér og börnum sínum að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Þess vegna á það að vera meginmarkmið okkar að skapa hér samfélag þar sem allir geti fundið kröftum sínum farveg, þar sem velferð og öryggi borgaranna er tryggt, þar sem lífskjör jafnast á við það sem best gerist í heiminum og þar sem frelsi, ábyrgð og virðing fyrir einstaklingum er höfð í hávegum."


En áhyggjur Ragnheiðar eru þessar: "Ég hef oft velt því fyrir mér hvort orðræðan í kjarabaráttu sé í raun letjandi fyrir fólk sem hefur áhuga á að mennta sig. Því ef einstaklingum er ekki umbunað fyrir að afla sér menntunar, reynslu og eða taka áhættu þá mun draga úr hvötum til að fara í skóla, hvötum til nýsköpunar og hvötum til fjárfestinga. Áhrif þess yrðu einföld því velferð okkar allra myndi minnka. Ég hef ekki þá trú að það sé sú stefna sem við viljum taka. En ég hef þá trú að með orðræðunni sem nýtt er í kjarabaráttu dagsins í dag sé okkur ekki að takast að einbeita okkur að því sem öllu máli skiptir á vinnumarkaði, jafnt hinum almenna og hinum opinbera, að auka kaupmátt allra.


Sjá má allan pistil Ragnheiðar í pistladálkinum á hringbraut.is á fiorsíðu vefsins.