Ísland má ekki takmarka innflutning

ESA telur íslensk lög um innflutning á vörum úr eggjum og mjólk brjóta í bága við EES samninginn.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) birti í gær álit sitt þess um að lög á Íslandi, sem leyfisbinda og setja tilgreind skilyrði fyrir innflutningi á vörum úr eggjum og mjólk, séu ekki í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. 

Íslensk löggjöf felur í sér innflutningstakmarkanir á hráum eggjum og vörum úr þeim sem og ógerilsneyddri mjólk og mjólkurvörum. Innflytjendur verða samkvæmt að sækja um leyfi og leggja fram margvísleg gögn til Matvælastofnunar. ESA telur að þessar kröfur stangist á við tilskipun um eftirlit með dýraheilbrigði.

Markmiðið með lögunum er að verjast sjúkdómum, t.d. vegna salmonellu og listeríu auk annarra sjúkdóma sem geta borist á milli manna og dýra, og tryggja þannig góða stöðu Íslands í þessu tilliti, segir í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Íslandi er veittur tveggja mánaða frestur til að bregðast við áliti ESA.