Ísland í skotlínu nú eins og í hruninu

Nýr utanríkisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir sagði í fyrstu þingræðu sinni í morgun að mikilvægt væri að standa vörð um orðspor Íslands. Hún sagði að stormur liðinna daga hefði beint kastljósinu að landinu með neikvæðum hætti. Með sama hætti og Ísland hefðði orðið fyrsta fórnarlamb fjármálakreppunnar 2008 væri landið  nú fyrst ríkja í skotlínu á ný og átti nýr utanríkisráðherra þar væntanlega við panamalekann og umfjöllun erlendra fjölmiðla um hann. Mikilvægt væri að koma böndum á stjórn mála og hennar ráðuneyti myndi ekki slá slöku við.

Greina mátti kurr í þingsal vegna líkingar utanríkisráðherra um hneykslið nú og bankahrunið 2008. Össur Skarphéðinsson þingmaður, kenndur við forsetaframboð og fyrrum utanríkisráðherra, sagði ræðu Lilju þó efnisríka og góða.

Þá sagði Lilja Alfreðsdóttir einnig að evrópskt öryggi standi á tímamótum og alvarlegar áskoranir s.s. hryðjuverk væru handan við hornið. Mikilvægt sé að Ísland leggi sitt af mörkum til að efla varnir landsins.