Ísland í alþjóðlegri viðbragðsstöðu

Þegar náttúrhamfarir geisa líkt og nú í Nepal í kjölfar jarðskjálftans fer í gang alþjóðlegt viðbragðskerfi jafnt til björgunar og hjálparstarfa. Íslenskar viðbragðssveitir taka þátt í þessu ferli og taka ákvörðun um hvort senda eigi hjálparstarfsmenn á staðinn til að taka þátt í alþjóðlegu björgunar- og hjálparstarfi. 


Þátttaka Íslendinga í þessu alþjóðlega viðbagðskerfi er viðfangsefni Heimsljóss í kvöld.  Sólveig Þorvaldsdóttir og Hjálmar Örn Guðmundsson hjá alþjóðlegu rústabjörgunarsveitinni eru gestir Sólveigar Ólafsdóttur ásamt Jóni Brynjari Birgissyni og Elínu Jónasdóttur hjá Rauða krossinum. 

 

Tólf tímum eftir að skjálftinn reið yfir í Nepal tók Slysavarnafélagið Landsbjörg ákvörðun um að senda ekki alþjóðlegu björgunarsveitina á staðinn, þar sem talið var að nægjanlegur liðsauki væri þegar á leiðinni.  Rauði krossinn hefur þegar sent einn hjálparstarfsmann af stað til Nepal, og á von á að fleiri bætist í hópinn næstu daga og vikur.

 

Í Heimsljósi í kvöld er rætt í þaula um eðli björgunarstarfs á hamfarasvæðum og hvernig hjálparstarfi er háttað. Þátturinn er frumsýndur klukkan 20.45.