Ríkisstjórnin samþykkti í gær að taka þátt í samstilltum aðgerðum gegn Rússum vegna Salsbury-málsins svonefnda. Ákveðið var að rússneskir stjórnarerindrekar yrðu þó ekki sendir úr landi líkt og aðrar þjóðir hafa ákveðið. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir Rússa ekki hafa sýnt samstarfsvilja í Salsbury málinu.
Anton Vasiliev, sendiherra Rússlands á Íslandi var tilkynnt um þessa afstöðu íslenskra stjórnvalda í síðdegis í gær á fundi í ráðuneytinu.
Sextán þjóðir ESB auk annarra þjóða hafa vísað alls 110 diplómötum úr landi. Öllum tvíhliða fundum með rússneskum ráðamönnum og háttsettum embættismönnum verður frestað um óákveðinn tíma.
Rússar neita því enn að þeir hafi haft aðkomu að efnavopnaárás á rússneska gagnnjósnarann Sergei Skripal og Yuliu, dóttur hans, í enska bænum Salsbury í byrjun mánaðarins, en þau liggja enn bæði þungt haldin á sjúkrahúsi.
Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, sagði á Rúv í gær að ákvörðun Evrópulandanna, Bandaríkjanna og Kanada um að reka rússneska diplómata úr landi að brostið sé á með nýju köldu stríði.
„Samskiptin eru algjörlega við frostmark og þetta er í raun ekki lengur spurning hvort það sé kalt heldur hvort það fari eitthvað að hitna,“ er haft eftir Eiríki. Munurinn á þessu kalda stríð og því fyrra sé að nú eru það ekki lengur Bandaríkin sem leiða Vesturveldin í deilunni heldur miklu frekar Evrópusambandið og ríki þess með Breta enn innanborðs.