Í nýrri rannsókn frá Stanford háskóla kemur fram að Ísland sé á meðal fárra landa sem hafa hagnast fjárhagslega vegna hnatthlýnunar á síðustu áratugum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í tímariti bandarísku vísindaakademíunnar, PNAS. Mbl.is greinir frá.
Í rannsókninni voru hitasveiflur bornar saman við hagvöxt yfir hálfrar aldar tímabil og þar kemur fram að verg landsframleiðsla Íslands hafi aukist um 92 prósent á árabilinu 1961-2010, sem tengist hlýnun jarðarinnar að hluta. Greint er frá því hlýnun jarðar hafi valdið umtalsverðu falli í efnahag hlýrri og fátækari landa, en svalari og auðugri lönd á við Ísland hafi hins vegar hagnast.
Þannig kemur einnig fram að verg landsframleiðsla Finnlands hafi aukist um 48 prósent og verg landsframleiðsla Noregs um 34 prósent, sem megi að hluta til rekja til hnattrænnar hlýnunar.