Magnús Bernhardsson fræðimaður og sögukennari í í Massachussets í Bandaríkjunum, segist aldrei á 20 ára búsetuferli utan landsteinanna hafa upplifað eins jákvæð viðbrögð gagnvart Íslandi og síðustu daga.
Ástæðan sé að í fréttum út um allan heim sé nú fjallað um að 10.000 íslenskir einstaklingar hafi boðist til að skjóta skjólshúsi yfir sýrlenska flóttamenn.
Magnús lauk doktorsprófi í nútímasögu Miðausturlanda frá hinum virta skóla Yale. Í stöðufærslu á facebook segir hann fyrir stundu: \"Ég hef búið erlendis í meira en 20 ár og aldrei hef ég fengið eins mikið af jákvæðum skilaboðum bæði frá fólki sem býr í Bandaríkjunum og í Miðausturlöndum sem lýsa aðdáun sinni á þessu framtaki. Þetta er sannarlega jákvæð landkynning!“ skrifar Magnús.
Félagsfræðingar sem Hringbraut hefur rætt við segja að það hafi töluvert vægi í þessum efnum að prófessor í Miðausturlandafræðum lýsi þessari skoðun. Skiptar skoðanir hafa þó verið um áhuga Íslendinga hér innanlands en sérstaklega hefur mátt greina annan tón í ritstjórnarstefnu Morgunblaðsins en hjá öðrum íslenskum fjölmiðlum.