Lyfjafyrirtækið Pfizer tilkynnti heilbrigðisráðuneytinu í gær að Ísland fengi tíu þúsund bóluefnisskammta um áramótin í stað 21 þúsund skammta eins og stefnt var að.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við RÚV að ólíklegt sé að bóluefnið dugi til að bólusetja fólk sem dvelur á hjúkrunarheimilum.
Heilbrigðisstarfsfólk er í fyrstu tveimur forgangshópnum og mun bóluefnið duga til að bólusetja þá hópa.
Lyfjastofnun Evrópu hefur ákveðið að flýta fundi um leyfisveitingu fyrir notkun bóluefnisins frá Pfizer og BioNtech um viku, vegna nýrra gagna sem hafa borist um bóluefnið, nú er fundurinn á dagskrá næsta mánudag. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir mögulegt að hægt verði að hefja bólusetningar fyrr en áætlað var.